Fyrrverandi Strandvarðastjarnan David Hasselhoff hefur hætt sem dómari í bandaríska raunveruleikaþættinum America's Got Talent. Ástæðan fyrir því mun vera sú að Hasselhoff er að vinna að eigin sjónvarpsþætti.
„Ég er stoltur af því að hafa verið hluti af America's Got Talent sem hefur verið vinsælasti sjónvarpþátturinn síðastliðin fjögur sumur.