Lögin Gleði og glens, sem Hvanndalsbræður flytja, og One More Day, sem Jógvan Hansen syngur, komust áfram í úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld.
Fyrrnefnda lagið er eftir Rögnvald Rögnvaldssson en það síðarnefnda eftir Óskar Pál Sveinsson og Bubba Morthens.
Fimm lög kepptu um tvö sæti í úrslitinum. Þriðja undanúrslitakvöldið verður eftir viku og úrslitin verða síðan í beinni útsendingu laugardagskvöldið 6. febrúar.