Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri innlendrar þáttagerðar Ríkisútvarpsins, hefur látið af störfum. Í bréfi sem hann sendi til samstarfsmanna segir að hann hafi ákveðið að láta af störfum af persónulegum ástæðum. Þórhallur hefur einnig ritstýrt Kastljósi Sjónvarpsins um árabil.