Guðmundur fæddur í Húsdýragarðinum

Guðmundur litli ásamt móður sinni, Möðru
Guðmundur litli ásamt móður sinni, Möðru

Spennan yfir gengi íslenska landsliðsins í handbolta virðist hafa skilað sér í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn því því fyrsti vorboðinn leit dagsins ljós á miðvikudag. 

Það var gráflekkótta huðnan Maðra sem bar hvítum geithafri en geitburður hefur aldrei hafist eins snemma og nú. Kiðlingurinn litli hefur fengið nafnið Guðmundur og er nafnið sótt til þjálfara íslenska karlalandsliðsins í handknattleik. 

 Maðra kom ásamt huðnunum Mjöll og Bót frá Möðrudal á Fjöllum síðastliðið haust og fylgdi þessi laumufarþegi með.  Maðra virðist hafa verið gengin fulla meðgöngu og hafi því fest fang síðsumars í sveitasælunni á Möðrudal. 

Mæðginin Maðra og Guðmundur
Mæðginin Maðra og Guðmundur
Geiturnar Maðra og Guðmundur
Geiturnar Maðra og Guðmundur
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Hugsanlegt er að þú verðir með hugmynd tengda tekjum og fjármálum á heilanum í dag. Gæfan er þér hliðholl í augnablikinu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir