Mynd, sem Egill Helgason birtir á bloggsíðu sinni úr samkvæmi, sem er sagt hafa verið haldið í skíðaskála Jóns Ásgeirs Jóhannessonar árið 2006 eða 2007, hefur vakið mikið umtal á vefnum.
Egill segir m.a. í svari við athugasemd lesanda, að þessi mynd hljóti að verði að teljast góð heimild en á henni sjáist stjórnendur úr Landsbanka að skemmta sér með Baugsfólki.