Söngkonan Cheryl Cole dundar sér við það þessa dagana að eyða eiginmanninum, Ashley Cole, út úr lífi sínu. Fyrr í vikunni fór Cheryl fram á skilnað þar sem Ashley, sem spilar knattspyrnu með Chelsea, hefur haldið ítrekað framhjá henni.
Á hún að hafa ákveðið að húðflúr sem minna á hann verði fjarlægð. Til að mynda „Mrs C" aftan á hálsi hennar. Síðan hverfa ljósmyndir af þeim saman smátt og smátt af heimili þeirra í Surrey. Hún hefur einnig óskað eftir því að fá flýtimeðferð varðandi lögformlegan skilnað.