Menntaskólinn í Reykjavík hafði sigur á Menntaskólanum á Egilsstöðum í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í kvöld. MR fékk 34 stig en ME 22 stig. Þetta var fyrri viðureignin í undanúrslitum keppninnar á RÚV og MR því komið í úrslit - ekki í fyrsta sinn.
Síðari viðureignin í undanúrslitunum fer fram 20. mars á milli Versló og Fjölbrautaskólans á Suðurlandi. Annar hvor skólinn mætir svo MR í úrslitum Gettu betur í Sjónvarpinu 27. mars nk.