Tveir Kínverjar voru á ferð í Reykjadal á dögunum og óku þar óvart á ljósastaur í hálku. Var þeim eðlilega nokkuð brugðið.
En þeim brá víst ekki síður þega fyrsti maður á vettvang ávarpaði þá á lýtalausri kínversku! Þarna var sem sé á ferð sveitarstjórinn Tryggvi Harðarson.
Frá þessu segir á vefriti húsvíska blaðsins Skarpur, skarpur.is.