Hollenskur listamaður er að reisa tvö stór listaverk á ísjaka í grænlenskum firði. Til stendur að fylgjast með verkunum þegar þau fljóta á brott á ísjakanum.
Þorpið Uummannaq er á eyju í grænlenskum firði. Í vetur myndaðist enginn ís umhverfis eyjuna og íbúarnir gátu því ekki notað hundasleða til að komast leiðar sinnar.
Hollenski listamaðurinn Ap
Verheggen ákvað að reisa listaverkin á ísjaka í firðinum til að vekja athygli á hlutskipti inúíta á Grænlandi. Fylgst verður með ísjakanum ef hann flýtur á brott, Verheggen segir, að ef listaverkin enda á sjávarbotni hafi hann gert áætlun um að endurheimta þau.