Fyrsta tölublað nýs tímarits um fótbolta lítur dagsins ljós í dag. Tímaritið heitir GOAL og er ritstýrt af Halldóru Önnu Hagalín sem einnig ritstýrir unglingablaðinu Júlíu. Birtingur gefur tímaritin út.
Halldóra segir að klárlega hafi vantað alvörufótboltatímarit og segist hafa trú á að nú sé eitt slíkt komið fram.
Halldóra er áhugamanneskja um fótbolta en segist ekki hafa æft íþróttina, aðeins horft á hana. „Það á betur við mig,“ segir hún.