Kærasta rokkarans Ronnie Wood, Anja Araujo, var lögð inn á sjúkrahús eftir deilur við hann á dögunum.
Araujo er sögð hafa tekið mikið æðiskast eftir að hún fann ljósmynd af honum með fyrrverandi kærustu sinni, Ekaterinu Ivanovu, og var ástand hennar það alvarlegt að hringja þurfti á sjúkrabíl og færa hana á sjúkrahús.
Samband þeirra hefur að sögn dagblaðsins News of the World verið ærið stormasamt. Araujo reif t.a.m. tvö af málverkum hans eftir að hún kom að honum sötrandi áfengi, en Wood fór í meðferð í janúar sl. Þá sló hún rokkarann sem fékk glóðarauga fyrir vikið.
Heimildarmaður segir að Araujo hafi reynt að halda Wood frá áfengi allt frá því hann lauk meðferðinni. Wood og Araujo byrjuðu saman í febrúar, skömmu eftir að hann hætti með Ivanovu.