Sandra sækir um skilnað

Jesse James og Sandra Bullock.
Jesse James og Sandra Bullock.

Bandaríska kvikmyndaleikkonan Sandra Bullock, sem fékk Óskarsverðlaun fyrir besta leikinn í aðalhlutverki í vetur, hefur sótt um skilnað frá Jesse James, eiginmanni sínum.

Bullock staðfesti þetta við tímaritið People í morgun. Mánuður er liðinn frá því nokkrar konur komu fram opinberlega og sögðust hafa átt vingott við James.  

„Já, ég hef krafist skilnaðar," hefur blaðið eftir Bullock. Sagðist hún vera hrædd og sorgmædd. 

People segir einnig frá því, að Bullock hafi ættleitt lítinn dreng, Louis Bardo Bullock, sem er 3½ mánaðar gamall. Á forsíðu blaðsins er mynd af Bullock með drenginn.  Segir People að þau Bullock og James hafi óskað eftir því að ættleiða barn fyrir nærri fjórum árum og þau hafi sótt drenginn til New Orleans í janúar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert gæddur góðum hæfileikum en hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér þá. Ástamálin ganga vel, þú svífur um á bleiku skýi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Ragnheiður Gestsdóttir
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Hugrún Björnsdóttir
4
Eva Björg Ægisdóttir
5
Anna Margrét Sigurðardóttir