Iðnhönnuðurinn Emilía Borgþórsdóttir vakti töluverða athygli á hönnunarsýningunni International Contemporary Furniture Fair í New York fyrr í þessum mánuði.
Þar sýndi Emilía hægindastól sem hún hannaði og fékk umfjöllun í fjölmörgum veftímaritum sem fjalla um hönnun og lífsstíl.