Hinn margreyndi meistari sjónvarpsviðtala, Larry King, mun brátt hætta með þátt sinn á sjónvarpsstöðinni CNN.
Þetta kemur fram á vef breska tímaritsins The Daily Telegraph. Eftir að hafa tekið viðtöl á besta sjónvarpstíma sjónvarpsstöðvarinnar síðan 1985 er komið að því fyrir Larry að kveðja sjónvarpsvélarnar. Áhorf þáttar hans hefur fallið um 43% á síðasta ári einu en áhorfið var komið niður í 771.000 manns fyrstu þrjá mánuði þessa árs.