Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, heldur úti dagbók á Facebook-síðu sem hefur vakið mikla athygli, en Dagbók borgarstjóra á nú yfir 13.500 vini á síðunni. Í síðustu færslu dagsins fjallar Jón um hátíðarhöldin í dag, 17. júní, og gamlar konur í peysufötum.
„Varðandi 17 júní hátíðahöldin á Austurvelli þá finnst mér að það ætti að vera einhverskonar heiðurssæti fyrir allar gömlu konurnar sem koma í peysufötum. Leiðinlegt að sjá þær standa. Skoðum það. Góða nótt borgarar,“ skrifar Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur.