Paris Hilton var handtekin að loknum leik Brasilíu og Hollands í Suður-Afríku í dag grunuð um fíkniefnamisferli. Talsmaður lögreglunnar vildi ekki staðfesta nafn Hilton en viðurkenndi að þekktur einstaklingur yrði leiddur fyrir rétt vegna ákæru í tengslum við fíkniefni.
Lögreglumaður, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði að Hilton hafi verið tekin með fíkniefni, að því er fram kom á vefnum Soccernet. Hún hafi verið með maríjúana, sem heimamenn kalla „dagga“.