Sæunn Ýr Marinósdóttir útskrifaðist í fyrradag með BA-gráðu í klassískum ballett frá einum virtasta ballettskóla í Evrópu, Ungversku dansakademíunni.
Sæunn Ýr hóf þar nám árið 2007, en hún var ein af 15 stelpum sem teknar voru inn á þeim tíma af 250 sem mættu í inntökupróf. Sæunn Ýr var einungis þriggja ára gömul þegar hún hóf ballettnám.