Bítillinn Paul McCartney fagnar nú sigri sínum á skyndibitakeðjunni McDonald's, en hann krafðist þess nýlega að plaköt af hljómsveit hans, Bítlunum, yrðu fjarlægð úr útibúi hennar í heimaborg þeirra, Liverpool.
McCartney hefur verið grænmetisæta frá árinu 1971 og segist ekki vilja leggja nafn sitt við neitt sem viðkemur kjötvinnslu.