Mary sögð eiga von á sér

Mary krónprinsessa Dana.
Mary krónprinsessa Dana. Reuters

Mary, krónprinsessa Danmerkur, á von á sér og nýr prins eða prinsessa mun að öllum líkindum bætast við dönsku konungsfjölskylduna snemma á næsta ári. Um þetta eru dönsku vikublöðin sammála og segja, að krónprinsessan sé greinilega þunguð. 

Blaðið Her & Nu segir, að von sé á barninu í mars.

Se & Hør segir, að Mary hafi klæðst víðum fatnaði undanfarnar vikur eins og sjást megi á myndum. Þá hafi blaðamenn tekið eftir því, að Mary tók ekki Isabellu dóttir sína upp þegar litla prinsessan hrasaði þar sem fjölskyldan var í leyfi í Gråsten Slot.

Se & Hør segir einnig, að Mary hafi farið í læknisskoðun á Rigshospitalet í byrjun júlí.  

Þau Mary og Friðrik krónprins eiga tvö börn, Christian, sem er fjögurra ára, og Ísabellu, sem er 3 ára.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Einsettu þér að halda jafnvægi á milli einkalífs og vinnunnar og þá koma hlutirnir af sjálfu sér. Ekki missa kjarkinn þó illa gangi að fjármagna verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Unnur Lilja Aradóttir
2
Jenny Colgan
3
Kathryn Hughes
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Torill Thorup