KK fagnar á þessu ári 25 ára starfsafmæli.
Hann ætlar að fagna þessum tímamótum og halda tónleika í Háskólabíói laugardaginn 11. september kl. 21.00.
Þar ætlar KK að fara yfir ferilinn í tali og tónum og fá til sín góða gesti. Hljómsveitin verður svo undir styrkri stjórn Eyþórs Gunnarssonar.