NBA-stjarnan Earl Watson sem spilar fyrir Seattle SuperSonics segir að eiginkona sín, leikkonan Jennifer Freeman sem lék t.a.m. í þáttunum My Wife and Kids, hafi slegið sig í andlitið.
Þau stóðu í skilnaði fyrir skemmstu en hafa nú hætt við hann.
„Hún sló mig tvisvar af miklum krafti í andlitið með opinni hægri hendi áður en hún réðst á mig með járni. Sem betur fer tókst mér að slá járnið í burtu,“ segir körfuboltakappinn sem á greinilega um sárt að binda eftir árás leikkonunnar.