Susan Boyle, söngstjarnan úr hæfileikaþættinum „Britain's Got Talent“, mun syngja fyrir Benedikt XVI páfa þegar hann heimsækir Bretland í næsta mánuði.
„Það verður stórkostlegur heiður að syngja fyrir páfann en það er nokkuð sem mig hefur alltaf dreymt um. Þetta er ótrúlegt,“ sagði Boyle í viðtali við skoska dagblaðið Daily Record.
Hún mun syngja við messu undir berum himni í Glasgow þann 16. september og flytja lagið „I Dreamed a Dream“, sem skaut henni upp á stjörnuhimininn, auk sálmsins „How Great Thou Art.“
Páfinn mun fara í fjögurra daga heimsókn til Englands og Skotlands um miðjan september.