Spaugstofan verður með sjónvarpsþætti sína á Stöð 2 í vetur en nú er verið að skrifa undir tveggja ára samning um þetta í Þjóðmenningarhúsinu. Munu sýningar hefjast á þáttunum 9. október og verða þeir á sama tíma og þeir voru í Sjónvarpinu, klukkan 19:35 á laugardögum.
Þeir Karl Ágúst Úlfsson, Pálmi Gestsson, Sigurður Sigurjónsson og Örn Árnason sjá um þættina eins og þeir hafa gert undanfarin ár.
Forráðamenn Ríkisútvarpsins ákváðu fyrr í ágúst, að Spaugstofan
yrði ekki á dagskrá næsta vetur. Ástæðan var sögð 9% niðurskurður sem RÚV þarf að fara eftir. Þá höfðu Spaugstofumenn séð um skemmtiþætti fyrir Ríkisútvarpið í 21 ár.