Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðarbæjar hefur ákveðið að ganga til samninga við Gaflaraleikhúsið um rekstur leikhúss að Strandgötu 50, til næstu þriggja ára.
Ákvörðun nefndarinnar byggir á mati á tilboðum og viðtölum við umsækjendur. Sjö leikhópar/rekstraraðilar sóttu um að standa að rekstri leikhúss í Hafnarfirði og ræddu nefndarmenn við alla umsækjendur, samkvæmt tilkynningu.
Að Gaflaraleikhúsinu standa Lárus Vilhjálmsson, Björk Jakobsdóttir, Gunnar Björn Guðmundsson, Gunnar Helgason og Ágústa Skúladóttir.