Ljósanótt í Reykjanesbæ verður sett í 11. sinn við Myllubakkaskóla í dag klukkan 10:30 þegar nemendur í leik- og grunnskólum sleppa 2000 blöðrum til himins. Nemendur koma til athafnarinnar í skrúðgöngu þar sem þeir flagga litum skólanna, fánum og trommuslætti.
Gítarsveit nemenda Gítar Myllos stjórnar fjöldasöng sem endar á fyrsta ljósalaginu Velkomin á Ljósanótt og Árni Sigfússon bæjarstjóri setur hátíðina.
Framundan er fjölbreytt dagskrá sem stendur yfir í fjóra daga eða til sunnudagsins 5. september.
Fetað til framtíðar í fjörunni er stígvélaverkefni leikskólans Holts sem hægt verður að skoða á Ljósanótt. Þar verða sýnd listaverk unnin af nemendum leikskólans þar sem stígvél eru í aðalhlutverki.
Í dag verður hægt að finna barnastígvél meðfram fjörugarðinum fyrir neðan tjarnirnar í Innri Njarðvík sem mynda listaverk þar sem börnin tjá hugmyndir sínar um fjöruna í máli og myndum.
Föngum á Litla-Hrauni hefur í nokkurn tíma staðið til boða að vinna við fjölbreytta iðju með það í huga að listsköpunin geti haft jákvæð og bætandi áhrif á þá. Til stuðnings þessu uppbyggingarstarfi var ákveðið að sýna og selja margvíslegar afurðir fanganna á Ljósanótt í Reykjanesbæ í Gömlu búð við Duustorg.