Sýning á verkum Tryggva Ólafssonar listamanns opnaði í gær á Norðurbryggju, menningarhúsi Íslendinga í Kaupmannahöfn. Á sýningunni er að finna verk hans frá undanförnum 25 árum.
Fjöldi fólks mætti á opnunina, meðal annars margir vina Tryggva frá tíma hans í Danmörku, en Tryggvi og eiginkona hans voru búsett í Kaupmannahöfn í fjölda ára. Opnunarræða sýningarinnar var flutt af Peter Poulsen, sem las m.a. ljóð úr safni Einars Márs Guðmundssonar fyrir Tryggva.
Flest verkin á sýningunni koma frá Myndlistarsafni Tryggva Ólafssonar á Neskaupsstað, en einnig hafa verið fengin að láni verk í einkaeign.
Sýningin er opin fram til 26. desember í ár.