Hellti eigin saur yfir gesti

Attila Blubnik fyllti fötuna sína af eigin saur.
Attila Blubnik fyllti fötuna sína af eigin saur.

Bálreiður eldri maður hellti úr fleiru en reiðiskálum sínum yfir gesti veitingahúss í Króatíu nú á dögunum.

Hinum 67 ára gamla Attila Blubnik var nóg boðið þegar hávaði og læti bárust frá veitingahúsi á neðstu hæð í húsi hans. Í reiði sinni stormaði Blubnik niður á veitingastaðinn og sturtaði eigin saur yfir gesti sem að hans mati voru með of mikil læti. Blubnik var umsvifalaust handtekinn fyrir athæfið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Attila Blubnik kemur við sögu lögreglu í heimabæ sínum, Murter, í Króatíu. Hann hefur áður gert eiganda sama veitingahúss lífið leitt er hann gagnrýndi útisvæði sem var opnað við veitingastaðinn. Þá gekk Blubnik um með viðarbút og lamdi gesti veitingahússins í hausinn með honum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Sýndu öðrum tillitssemi og umburðarlyndi og þú munt fá þá framkomu endurgoldna þúsundfalt. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Kathryn Hughes
2
Torill Thorup
3
Steindór Ívarsson
5
Birgitta H. Halldórsdóttir