Nakin kona sem rændi leigubíl náðist skömmu seinna sofandi í aftursæti bílsins.
Konan tók leigubíl eins og hver annar íbúi í borginni Covington í Louisiana-fylki í Bandaríkjunum. Fljótlega áttaði leigubílstjórinn sig þó á að ekki var allt með felldu hjá henni þar sem hún bað um að fara til Michigan sem er í um 1900 km fjarlægð frá Covington.
Hann neitaði að keyra hana svo langt og reiddist þá konan mjög og hóf að afklæða sig í aftursæti bílsins. Leigubílstjórinn bað hana vinsamlegast um að klæða sig aftur í fötin en hún þvertók fyrir það svo bílstjórinn tók stefnuna á lögreglustöð í nágrenninu.
Við komuna á lögreglustöðina hljóp bílstjórinn inn til að láta vita af konunni en gleymdi lyklunum í bílnum og ákvað því farþeginn ráðagóði að stela leigubílnum.
Lögregla á svæðinu segir hana ekki hafa komist langt þar sem hún keyrði aðeins nokkur hundruð metra, lagði bílnum og fékk sér svo smá blund í aftursæti bílsins. Konan var handtekin og ákærð fyrir nekt á almannafæri og þjófnað.