Það var hljómsveitin Lights on the Highway sem bar sigur úr býtum í lokaþætti spurningarþáttarins Popppunkts, en þeir öttu kappi við Skriðjöklana í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu í kvöld.
Keppnin var jöfn og spennandi framan en svo fór að lokum að Lights on the Highway sigraði með fimm stiga mun, 30-25. Fulltrúi Ljótu Hálfvitanna, sem eru meistarar síðasta árs, afhenti verðlaunabikar í lokin.
Þetta var jafnframt 100. Popppunktsþátturinn.