Útlendingaeftirlitið á Narita flugvellinum í Tókýó synjaði Paris Hilton um leyfi til að koma inn í Japan í dag. Í gær viðurkenndi Hilton að hafa átt kókaín sem fannst í handtösku hennar í síðasta mánuði og að hafa veitt mótspyrnu er lögregla handtók hana í Las Vegast. Var hún dæmd í eins árs skilorðsbundið fangelsi.
Hilton átti að mæta á blaðamannafund í Tókýó til að kynna nýja tískulínu hennar en blaðamannafundinum var aflýst eftir að hún fékk ekki landvistarleyfi. Ekki er vitað hvort Hilton heldur för sinni áfram en hún á meðal annars að koma fram á fundum í Malasíu og Indónesíu á næstunni. Ferðin var skipulögð áður en hún var skipulögð áður en kókaínið fannst í hennar vörslu, samkvæmt frétt Sky sjónvarpsstöðvarinnar í kvöld.