Kvikmyndahátíðin RIFF var opnuð í Þjóðleikhúsinu í kvöld við hátíðlega athöfn. Jón Gnarr borgarstjóri setti hátíðina með formlegum hætti en opnunarmyndin í ár var bandaríska myndin Cyrus.
Eru 22 myndir sýndar strax fyrsta daginn í Háskólabíói, Iðnó, Bíó Paradís og Norræna húsinu.
Að því er segir í fréttatilkynningu hátíðarinnar er um nokkur tímamót að ræða, enda ekki á hverjum degi sem kvikmynd er sýnd í Þjóðleikhúsinu. Þess má þó geta að Guðjón Samúelsson teiknaði Þjóðleikhúsið með það í huga að þar væri einnig hægt að sýna kvikmyndir.
Miðasala á hátíðina er í fullum gangi, en hún fer fram í verslun Eymundsson í Austurstræti. Ítarlega dagskrá hátíðarinnar má finna í glæsilegu dagskrárriti hennar og á riff.is.