Stofnandi hárgreiðslustofu í Sydney í Ástralíu er sannkallaður frumkvöðull en hárgreiðsludömur stofunnar klippa kúnnana berar að ofan.
Það tók hinn 26 ára gamla Wojtek Wasilewski eitt og hálft ár að finna nógu margar stúlkur til að starfa á stofunni en nú er Hot Cuts loks opnuð.
„Mig langaði að stofna rakarastofu fyrir karlmenn,“ segir Wasilewski og bætir við að viðskiptin ganga eins og í sögu. „Síminn bara stoppar ekki enda eru stelpurnar glæsilegar.“
Á heimasíðu hárgreiðslustofunnar stendur: „Stofan okkar hefur allt sem þú býst við með einn bónus: Hárgreiðslukonurnar eru ekki bara kynþokkafullar heldur líka berar að ofan!“