Rannveig Kramer náði í dag þriðja sæti í sínum flokki á Norðurlandamótinu í hreysti, sem fór fram í Helsinki í Finnlandi. Magnús Bess Júlíusson komst í úrslit í 100 kg flokki í vaxtarrækt en hafnaði í sjötta sæti.
Fram kemur á vefnum fitness.is, að þetta sé einn besti árangur sem íslendingar hafa náð á
sambærilegum alþjóðlegum mótum í hreysti og vaxtarrækt.