Maður frá Sádí-Arabíu myrti 17 ára gamlan son sinn ásamt móður drengsins og henti líki hans í brunn sem er ekki í notkun. Síðan fór maðurinn beint til lögreglunnar og tilkynnti um hvarf sonar síns.
Hinn 56 ára gamli maður sem býr í bænum Yanbu í Sádí-Arabíu kyrkti son sinn með hjálp móður drengsins og henti honum í brunninn áður en hann fór til lögreglunnar.
Lögreglan handtók nokkra grunaða einstaklinga áður en upp komst um foreldra drengsins.
Samkvæmt sádí-arabíska dagblaðinu Almadina játaði móðirin morðið og faðirinn stuttu seinna. Ekki er vitað um tildrög glæpsins að svo stöddu.