Tónleikaför Bon Jovi, The Circle, var sú arðbærasta á árinu en alls skilaði ferðin sveitinni 201,1 milljón Bandaríkjadala í tekjur, samkvæmt ársyfirliti frá Pollstar. Ástralska hljómsveitin AC/DC er í öðru sæti listans með miðasölu upp á 177 milljónir dala. Er þetta annað árið í röð sem AC/DC er í öðru sæti listans yfir tekjuhæstu tónleikaferðirnar.
U2, sem skipaði fyrsta sæti listans í fyrra er nú í því þriðja með tekjur af miðasölu upp á 160,9 milljónir dala.
Lady Gaga er samkvæmt frétt BBC í því fjórða og Metallica í fimmta.