Breski knattspyrnumaðurinn David Beckham hefur höfðað mál á hendur bosnísku vændiskonunni Irma Nici og bandaríska tímaritinu In Touch fyrir greinaskrif þess efnis að hann hafi átt í sambandi við Nici.
Í tímaritinu var því haldið fram að Beckham hefði haldið fram hjá konu sinni, Victoriu með Nici.
Hann krefst 25 milljóna dollara í bætur og segir sögurnar vera tilbúning, hann hafi aldrei hitt konuna og hvað þá átt við hana náin kynni.
Hann segir fullyrðingarnar hafa valdið sér og fjölskyldu sinni mikilli vanlíðan og að þetta hafi haft áhrif á persónulegt líf hans og starfsframa.
Nici staðhæfir að Beckham hafi greitt sér 10.000 Bandaríkjadollara fyrir að hafa átt með sér fundi á hinum ýmsu lúxushótelum víðs vegar um heiminn.
Hún mun hyggja á gagnsókn í málinu og segir málið hafa valdið sér likamlegum og tilfinningalegum skaða.