Casper Christiansen og Frank Hvam, sem leika aðalhlutverkin í bíómyndinni, Klovn eru komnir til Íslands í tilefni af sýningu myndarinnar hér á landi.
Myndin hefur slegið í gegn hér á landi líkt og í Danmörku þar sem myndin hefur slegið öll áhorfsmet. Myndin þykir nokkuð gróf, en húmorinn svíkur ekki, þ.e.a.s. fyrir þá sem á annað borð hafa húmor fyrir trúðunum og uppátækjum þeirra.