Hjónin David og Victoria Beckham eiga von á sínu fjórða barni næsta sumar. Talskona Victoriu hefur greint frá þessu. Beckhamhjónin eiga þrjá drengi fyrir, þá Brooklyn sem er 11 ára, Romeo sem er átta ára og Cruz sem er fimm ára.
Talskonan segir að Beckhamhjónin, sem giftust árið 1999, séu mjög spennt. Hún vildi hins vegar ekki greina frá því hversu langt Victoria sé komin á leið.
Nú er bara spurningin: Er fjórði pilturinn á leiðinni eða fyrsta stúlkan?