Norsku bræðurnir Petter og Marios Varner, sem reka fataverslunarkeðjuna Dressmann, hafa ráðið bresku rokksveitina The Rolling Stones til að markaðssetja föt.
Segja norskir fjölmiðlar að miðaldra menn, með grásprengt hár, sem til þessa hafa auglýst föt Dressmann, verði nú að víkja fyrir rokkurunum öldnu.
Fram kemur á vefnum hegnar.online, að viðræður við Rolling Stones hafi byrjað fyrir einu og hálfu ári eftir að hugmyndir vöknuðu um að tengja Dressmann við tónlist.
Dressmann rekur um 400 verslanir í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Lettlandi, Íslandi, Danmörku og Þýskalandi. Verið er að endurnýja allar verslanirnar.