Lögin Nótt, sem Jóhanna Guðrún Jónsdóttir flutti, og Eldgos, sem Matthías Matthíasson og Erla Björg Káradóttir fluttu, komust áfram í úrslit Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld.
Nótt er eftir Maríu Björk Sverrisdóttur, Marcus Frenell og Beatrice Eriksson en textinn er eftir Magnús Þór Sigmundsson. Eldgos er eftir Matthías Stefánsson og textinn eftir Kristján Hreinsson.