Bandarískur karlmaður var í dag dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir stuðning við hryðjuverkastarfsemi og hótanir, þar á meðal fyrir að hóta höfundum South Park teiknimyndanna fyrir að teikna Múhameð spámann í bjarnargervi.
Zachary Adam Chesser, 21 árs, játaði sök í október. Neil MacBride, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að Chesser hafi valdið fólki ótta með gerðum sínum.