Bandaríska rokkhljómsveitin The Eagles er væntanleg hingað til lands og heldur tónleika í nýju Laugardalshöllinni 9. júní næstkomandi. Þetta má sjá á vefsíðu hljómsveitarinnar. Sena ehf stendur að tónleikunum.
The Eagles koma hingað til lands með 65 manna fylgdarliði og hyggjast dvelja hér í nokkra daga fyrir tónleikana og fyrir komandi tónleikaferð um Evrópu. Að loknum tónleikunum heldur hljómsveitin til Noregs.