Bandaríska leikkonan Kirsten Dunst situr fyrir á Evuklæðunum einum, með ilmvatnsflösku í fanginu, við hlið ljóns í nýrri auglýsingu frá Bulgari. Ilmurinn sem Dunst kynnir nefnist Mon Jasmir Noir fragrance.
Bulgari komst í hann krappan fyrir um það bil ári þegar auglýsing frá fyrirtækinu, sem skartað leikkonunni Julianne Moore nakinni með handtöskur og litla ljónsunga, var bönnuð í Feneyjum á Ítalíu.