Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir var kosin ungfrú Reykjavík í kvöld. Hún er tvítug Kópavogsmær. Stundar nám við Verzlunarskóla Íslands og er á lokaönn á viðskiptafræðibraut.
Í öðru sæti varð Eyrún Anna Tryggvadóttir og í þriðja sæti varð Hjördís Hjörleifsdóttir.
Lilja Ragna Róbersdóttir fékk flest atkvæði í símakosningu. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan.