Ungstirnið Justin Bieber missti 80 þúsund aðdáendur á Twitter þegar hann klippti sig um daginn. Hvað ætli aðdáendurnir segi um mottuna?
„Ég ætla ekki að raka mig í mánuð svo allir geti séð yfirvaraskeggið mitt,“ sagði Bieber á Twitter-síðu sinni á laugardaginn.
Bieber er nú á tónleikaferðalagi um Evrópu og notar Twitter-síðuna mikið til að tjá sig. Á sunnudaginn sagðist hann meðal annars sakna kærustunnar, Selenu Gomez, sem er vonandi ánægð með mottuframtakið hjá Bieber.