Í dag verða hengdir upp 36 öskupokar eftir jafnmarga hönnuði og listamenn í SPARK DESIGN SPACE á Klapparstíg.
Pokarnir eru til sölu og andvirði þeirra rennur til styrktar systur Victo sem rekur barnaheimili í Tógó fyrir heimilislaus börn. Þeir pokar sem hengdir verða á fólk breytast í lifandi farandsýningu.