„Persónan sem ég leik í Makalaus, Ósk, hún er pínu drusla,“ segir Birgitta Birgisdóttir, leikkona. Hún er á forsíðu nýjasta tölublaðs Monitor sem kemur út á morgun.
„Við eigum ekki margt sameiginlegt, sem betur fer,“ bætir hin brosmilda Birgitta við.
Í Monitor-blaði morgundagsins má lesa skemmtilegt og forvitnilegt viðtal við Birgittu þar sem hún talar meðal annars um ferilinn og hvernig það er að vera oft kölluð Penelope Cruz Íslands.