Glamúrgellan Vala Grand setti inn mynd af sér fáklæddri inn á Facebook-síðu sína fyrr í dag.
Á myndinni sést Vala taka mynd af sér í spegli. Hún snýr baki í spegilinn og lyftir upp bolnum sínum til að sýna lesendum síðunnar rassinn sinn.
„Eftir erfiðar æfingar kom þessi niðurstaða,“ segir Vala um myndina og vísar þá væntanlega í líkamsræktaræfingar til að móta afturendann.
Myndin hefur fengið góð viðbrögð aðdáenda Völu en einn þeirra skrifaði þó til hennar: „Vala, Vala, þetta er ekki viðeigandi.“