Yfirmaður hjá Burger King hefur þurft að biðjast opinberlega afsökunar vegna ummæla sinnar um breskar konur og mat í Bretlandi.
Hinn brasilíski Bernardo Hess ræddi við háskólanema í Bandaríkjunum um dvöl sína við háskólann í Warwick.
Hann sagði velgengni sína í náminu tengjast litlum truflunum í Bretlandi. „Maturinn er hræðilegur og konurnar eru ekki mjög aðlaðandi,“ sagði Hess í fyrirlestrinum.
Ummæli hans fóru beint í skólablað í Chicago og hefur Hess hlotið mikla gagnrýni vegna þeirra.