Knattspyrnumaðurinn Peter Crouch skráði sig inn á hótelherbergi með 22 ára gamalli konu í síðasta mánuði þegar hann var í Dubai að skemmta sér.
Hinn þrítugi Crouch er nýbakaður faðir og þykir hneykslanlegt að hann hafi farið á hótel með annarri konu en eiginkonunni Abbey Clancy klukkan þrjú að nóttu til.
Crouch hefur ekki gefið út yfirlýsingu vegna þessa máls en Suzanne Thunestveit fullyrðir að hann hafi komið með henni á hótelið umrædda nótt í Dubai.